Menningarheimurinn - Stundaglasið (3/6)
Útvarp Krakkarúv - En podcast av RÚV
![](https://is1-ssl.mzstatic.com/image/thumb/Podcasts115/v4/b8/49/64/b8496420-0254-21a0-5cd3-f25f2b7ecc0b/mza_2779633081500731284.jpg/300x300bb-75.jpg)
Kategorier:
Er hægt að ferðast fram og til baka í tíma? Hvernig eru tímavélar gerðar? Hvernig semur maður sögur um tímaflakk? Sex þátta sería um tímaferðalög og ævintýrin sem þeim fylgja. Í hverjum þætti heyrum við einn hluta af útvarpsleikritaseríunni Stundaglasið, en hún er bæði skrifuð og leikin af nemendum á leiklistarbraut í Borgarholtsskóla. Við spjöllum líka við Ævar Þór um tímaflakksævintýri, heyrum í nokkrum krökkum sem velta fyrir sér hvað þau myndu gera ef þau gætu farið hvert sem er í tíma og hlustum á góða tímaflakkstónlist. Tímaflakkssérfræðingur þáttanna: Ævar Þór Benediktsson, rithöfundur og leikari Tímaflakkshugleiðingar frá nemendum í fjórða bekk í Ísaksskóla í Reykjavík Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir Þriðji þáttur af sex