Vextir þokast niður í takt við væntingar
Umræðan - En podcast av Landsbankinn

Kategorier:
Stýrivextir voru lækkaðir um 0,5 prósentustig á miðvikudaginn og peningastefnunefnd hittist ekki aftur fyrr en í febrúar. Ef verðbólga hjaðnar í takt við spár má gera ráð fyrir að raunvextir hækki um heilt prósentustig á næstu þremur mánuðum. Áfram er verðbólga þó langt yfir markmiði og vextir himinháir, og ýmsir óvissþættir kunna að setja strik í reikninginn. Hagfræðingar í Greiningardeild Landsbankans stikla á stóru um stöðuna í efnahagsmálum í nýjasta hlaðvarpsþætti Umræðunnar.