Sögur frá Mývatni og Háskólanum á Bifröst
Sögur af landi - En podcast av RÚV
![](https://is1-ssl.mzstatic.com/image/thumb/Podcasts115/v4/b2/99/34/b2993468-de15-ebfe-6420-f46081a0018c/mza_4248408785224864598.jpg/300x300bb-75.jpg)
Kategorier:
Sögur af landi hefja aftur göngu sína í dag eftir sumarfrí. Í þættinum er rætt við Mývetninginn Inga Þór Yngvason, en hann var einn þeirra sem tók þátt í sprengingunni á Miðkvíslarstíflu fyrir 50 árum síðan. Ingi Þór segir frá veiðiskap og fuglavernd við Mývatn, þátttöku sinni í Miðkvíslarsprengingunni, sem og forláta fallbyssu sem hann neyddist til að fela fyrir yfirvöldum. Í þættinum verður einnig farið í heimsókn í Háskólann á Bifröst. Þar er rætt við Margréti Jónsdóttir Njarðvík, sem tók við starfi rektors í sumar. Þar var auk þess rætt við þau Egil Örn Rafnsson og Bryndísi Ingu Reynis, nemendur við skólann sem nýfluttir eru í háskólaþorpið á Bifröst. Efni í þáttinn unnu Úlla Árdal og Elsa María Guðlaugs Drífudóttir. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.