Samfélagsmiðlanotkun barna og leiksýning um Marlene Dietrich

Mannlegi þátturinn - En podcast av RÚV

Við höfum fjallað talsvert um samfélagsmiðlanotkun og snjalltækjanotkun, ekki síst unga fólksins, í þættinum og þær afleiðingar sem hún getur haft. Þórhildur Halldórsdóttir, dósent við Sálfræðideild HR og barnasálfræðingur og Berglind Sveinbjörnsdóttir, lektor við Sálfræðideild HR og forstöðukona MSc námsins í hagnýtri atferlisgreiningu HR komu í þáttinn í dag og fræddu okkur um niðurstöður íslenskra rannsókna á tengslum samfélagsmiðla og tölvunotkunar við líðan ungmenna og hagnýt ráð fyrir foreldra barna. Söngleikur um ævi Marlene Dietrich var frumsýndur fyrir nokkrum dögum á Hótel Parliament, í Sjálfsstæðissalnum, sem margir þekkja betur sem gamla Nasa salinn. Höfundur og aðalleikona verksins, Sigríður Ásta Olgeirsdóttir leikkona og söngkona, féll fyrir ævisögu Dietrich sem hún fékk í jólagjöf frá systur sinni. Í sýningunni notar hún lög Dietrich til að segja söguna, en Sigríður syngur á fjórum tungumálum en leiknu atriðin eru á íslensku. Farið er í gegn um líf Marlene Dietrich, ástir og ævintýri, örvætingarfulla vonbiðla og harmþrungið ævikvöld. Við ræddum við Sigríði Ástu Olgeirsdóttur í þættinum. Tónlist í þætti dagsins: Hæ vinur minn / Fjallabræður (Halldór Gunnar Pálsson, texti Halldór Gunnar Pálsson og Magnús Þór Sigmundsson) Harvest moon / Neil Young (Neil Young) Lili Marlene / Marlene Diethrich (Norbers Schultze) Ich bin von kopf bis fuzz auf Liebe eingestellt / Marlene Dietrich (Frederick Hollaender) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON