Lífið á Spáni og fjármál heimilanna
Mannlegi þátturinn - En podcast av RÚV

Kategorier:
Það er ekki einfalt að búa í landi íslensku krónunnar. Flest fólk þarf að taka húsnæðislán, krónan veikist og krónan styrkist, það er verðbólga,verðtrygging og já það er ýmislegt sem hefur áhrif á afkomu okkar og nú bíða allir eftir næstu með stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans. Björn Berg fjármálaráðgjafi kom til okkar í spjall í dag. Það er draumur margra íslendinga að búa erlendis og í dag búa um 50 þúsund manns eða um 13 prósent þjóðarinnar á erlendri grundu.Og það er ekki bara veðurfarið sem heillar því verðlag á húsnæði,mat og drykk vegur þungt. Jóhann Hlíðar Harðarsson blaðamaður, fréttamaður, þýðandi og túlkur ofl. hefur verið búsettur á Spáni í nokkur ár og hefur stundum á samfélagsmiðlum og í pistlum verið að bera saman daglega lífið þar við hið íslenska. Við heyrðum í honum í dag. Tónlist frá útsendingarlogg 2024-03-15 Hjálmar - Það sýnir sig. Hljómar - Peningar. Walker Brothers, The - The sun ain't gonna shine anymore. Sigurður Flosason - Til þín með sólina í bakið.