Húsnæðismál Grindvíkinga, vinkill og Sunna Kristín lesandinn
Mannlegi þátturinn - En podcast av RÚV

Kategorier:
Ellen Calmon var ráðin verkefnisstýra Húsnæðisteymis Grindavíkurbæjar sl.desember en verkefnið var áætlað í 6 mánuði. Í upphafi snerist vinnan um að koma fólki í bráðabirgðarskjól en nú er verið að vinna að varanlegri lausnum í húsnæðismálunum. Ellen og hennar teymi hefur það verk með höndum að halda utan um og aðstoða það fólk sem er húsnæðislaust. Ellen kom til okkar í dag og fór með okkur yfir stöðuna. Við fengum svo vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni, í þetta sinn fjallaði vinkillinn um ótímabæra framkvæmdagleði á svikavori, en líka um ábrysti og hvernig þeir eru hanteraðir. Þá er fjallað um óhefðbundnar aðferðir við að vinna ýmis verk og hvernig sumar þeirra eiga uppruna sinn á einum stað og einni stundu auk þess sem nefnd eru ýmis dæmi um slíkt; en sum hver lýsa rósrauðum bjarma fortíðar og eru ekki til eftirbreytni í nútímanum. Svo var það lesandi vikunnar, í þetta sinn var það Sunna Kristín Hilmarsdóttir verkefnastjóri hjá samskiptasviði Háskólans í Reykjavík. Við fengum að vita hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Sunna talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: I am Glad My Mom Died e. Jennette McCurdy Tól e. Kristínu Eiríksdóttur Þagnarbindindi e. Höllu Þórlaugu Óskarsdóttur Kláði e. Fríðu Ísberg svo talaði hún um Guðrúnu Evu Mínervudóttur Tónlist í þættinum: Daydream / Doris Day (John Sebastian) Answer me, my love / Silva Þórðardóttir og Steingrímur Karl Teague (Gerhard Winkler, Fred Rauch og Carl Sigman) Lazy Sunday / Small Faces (Lane & Marriot) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR