Ertu klár í kynlífið? Vinkill dagsins og Aníta Rut lesandi vikunnar

Mannlegi þátturinn - En podcast av RÚV

Handbókin Ertu klár í kynlífið? var nýlega gefin út á vegum Samtaka um kynheilbrigði. Handbókin er ætluð ungum karlmönnum á aldrinum 16-24 ára. Tilurð þessarar handbókar má rekja til frásagna ungra karlmanna hér á landi en hún svarar ákalli þeirra eftir meiri fræðslu um kynheilbrigði. Bókin fjallar um sex viðfangsefni, sjálfsöryggi, samskipti, samþykki, sambönd, smokkanotkun og það að stunda kynlíf. Tvær af höfundum bókarinnar, Lóa Guðrún Gísladóttir, aðjúkt og doktorsnemi, og Sóley S. Bender, formaður samtaka um kynheilbrigði og prófessor emerita, komu í þáttinn og sögðu okkur meira frá henni. Við fengum svo vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni í dag. Vinkill dagsins fór aðeins á dýpið í dag, pistlahöfundur fékk það verkefni fyrir nokkru að rifja upp minningar úr bernsku sem var áhugaverð lífsreynsla og kannski mannbætandi. Tilgangurinn var að afla efnis fyrir listamanninn Ólaf Svein Gíslason, sem nú um stundir sýnir verkið „Undirliggjandi minni“ í Félagslundi, Flóahreppi. Eftir svona mikla naflaskoðun var svo notalegt að fá nokkrar vísur og skáldkonan Erla, Guðfinna Þorsteinsdóttir, fylgdi okkur inn í daginn. Svo var það lesandi vikunnar. Í þetta sinn var það Aníta Rut Kristjánsdóttir, læknir í sérnámsgrunni. Við fengum hana til að segja okkur frá því hvað hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum lífið. Aníta Rut talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Lady Tan's Circle of Women e. Lisa See The Wolf Den e. Elodie Harper Snerting e. Ólaf Jóhann Ólafsson Out e. Natsuo Kirino Percy Jackson sería e. Rick Riordan og Howl's Moving Castle e. Dianna Wynne Jones. Tónlist í þættinum: Glaðasti hundur í heimi / Friðrik Dór Jónsson, Dr. Gunni og vinir hans (Gunnar Lárus Hjálmarsson) Að vera í sambandi / Stuðmenn ( Tómas M. Tómasson, Valgeir Guðjónsson, Jakob Frímann Magnússon) Manstu ekki eftir mér / Ragnhildur Gísladóttir og Trabant ehf. (Ragnhildur Gísladóttir, texti Þórður Árnason) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON