Svíþjóðardemókratar staðnir að drullukasti, aðskilnaðarsinnar tapa í Katalóníu
Heimsglugginn - En podcast av RÚV - Torsdagar
![](https://is1-ssl.mzstatic.com/image/thumb/Podcasts115/v4/81/49/94/8149942f-2e75-bac6-f485-0da781e25810/mza_3881819415568696438.jpg/300x300bb-75.jpg)
Kategorier:
Svíþjóðardemókratarnir hafa á laun rekið ,,tröllaverksmiðjur" á netinu sem dreifðu áróðri gegn innflytjendum og óhróðri um stjórnmálamenn í öðrum flokkum. Svíþjóðardemókratarnir styðja minnihlutastjórn Ulfs Kristerssons en hafa samt á laun kastað skít í forystumenn ríkisstjórnarflokkanna. Þeir hafa brugðist ókvæða við en ekki er talið að stjórnin falli vegna málsins. Þetta ræddu Þórunn Elísabet Bogadóttir og Bogi Ágústsson í fyrri hluta Heimsgluggans. Í síðari hlutanum var rætt við í Jóhann Hlíðar Harðarson, fyrrverandi fréttamann RÚV sem býr á Spáni, um stjórnmál í Katalóníu. Jóhann segir að þau séu eins og flókin og spennandi reyfari. Aðskilnaðarsinnar töpuðu í héraðsþingskosningum um síðustu helgi og það kann að hafa talsverðar afleiðingar.