Squid Game og lestarsamgöngur á Íslandi
Hádegið - En podcast av RÚV
![](https://is1-ssl.mzstatic.com/image/thumb/Podcasts125/v4/e2/d1/4a/e2d14aa1-e00b-f15e-4139-38f9e10d670f/mza_328854530164793943.jpg/300x300bb-75.jpg)
Kategorier:
Suður-Kóresku sjónvarpsþættirnir Squid Game eru vinsælustu sjónvarsþættir heims um þessar mundur. Þeir eru umdeildir mjög, þar sem þeir þykja einkar ofbeldisfullir. Atli Fannar Bjarkason lítur við í Hádeginu og örskýrir um málið snýst. Á Íslandi eru engar lestir, engar lestarsamgöngur eins eiginlega allstaðar í kringum okkur. Það er umhverfisvænt að ferðast með lest, og þægilegt. Það þekkja allir sem hafa komið til útlanda. Umræðan um lestarsamgöngur á Íslandi skýtur oft upp kollinum en rökin gegn því að byggja hér upp lestarkerfi eru ýmiskonar, þá aðallega fjárhagslegs eðlis. Rúnólfur Ágústsson hefur undanfarin ár kannað möguleikan á rekstri lestarsamgangna hér á landi, aðallega með tilliti til lestar til og frá Keflavíkurflugvelli til miðborgar Reykjavíkur. Rúnólfur lítur við í síðari hluta þáttarins og við ætlum að fjalla um þennan samgöngumáta sem margir óska sér hér á landi, en virðist eins og staðan er núna, vera fjarlægur draumur. Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.