Hvirfilbyljir í Kentucky og áhrif loftslagsbreytinga á náttúruhamfarir
Hádegið - En podcast av RÚV
![](https://is1-ssl.mzstatic.com/image/thumb/Podcasts125/v4/e2/d1/4a/e2d14aa1-e00b-f15e-4139-38f9e10d670f/mza_328854530164793943.jpg/300x300bb-75.jpg)
Kategorier:
Við byrjum á náttúruhamförunum í Bandaríkjanum. Óttast var að vel yfir hundrað manns hafi látist í Kentucky-ríki þegar kröftugir hvirfilbyljir riðu yfir nokkra bæi í ríkinu aðfaranótt laugardags, en nú er talið að sú tala sé ekki svo há. Þetta er eitt versta óveður í manna minnum. Bandaríkjaforseti hefur heitið ríkisstjórn Kentucky allri þeirri aðstoð sem stjórnvöld geta veitt við leit að fólki og við uppbyggingu í þeim bæjum sem urðu verst úti. Þá ýjaði hann að því, sem fyrr segir - að hvirfilbyljirnir væru afleiðingar loftslagsbreytinga. En hafa loftslagsbreytingar áhrif á náttúruhamfararir? Eða, gerir hlýnun jarðar það að verkum að ákveðnar tegundir náttúruhamfara, eins og til dæmis hvirfilbylir, eru að verða algengari? Elín Björk Jónasdóttir veðurfræðingur situr fyrir svörum í síðari hluta þáttarins. Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.