Stella Soffía og afarnir fimm

Fram og til baka - En podcast av RÚV - Lördagar

Gestur Fram og til baka þennan laugardagsmorgun var Stella Soffía Jóhannesdóttir. Stella er framkvæmdarstjóri Bókmenntahátíðar í Reykjavík sem haldi er á tveggja ára fresti og fagnar stórafmæli á næsta ári, einnig er hún starfsmaður Reykjavík Literary Agency sem fer með réttindamál íslenskra höfunda á erlendri grundu. Stella bauð upp á afar frumlega nálgun á fimmu dagsins því hún sagði hlustendum frá fimm öfum sínum. Hún átti þó ekki þessa fimm afa beint, því tveir þeirra voru vissulega afar hennar en í hinum átti hún bónusafa. Frábærar frásagnir af vinskap Stellu við afa sína fimm. Í seinni hluta þáttar heyrðum við í Jóhanni Ágúst Jóhannssyni forstöðumanni Menn­ing­ar­stofu Fjarðabyggðar sem sagði okkur meðal annars frá menningar- og listahátíðinni Innsævi sem stendur yfir til miðs júlímánaðar. Eins og fram kem­ur í veg­leg­um kynn­ing­ar­bæk­lingi hátíðar­inn­ar tel­ur hún um 30 viðburði þann rúma mánuð sem hún stend­ur og er vett­vang­ur þeirra allt sveit­ar­fé­lagið Fjarðabyggð, frá Mjóaf­irði til Breiðdals­vík­ur. Nýútkomin og fersk íslensk tónlist fékk að njóta sín í þættinum ... auk KK sem er alltaf ferskur. Hér er lagalisti þáttarins: KK BAND - Álfablokkin. Lón - Hours. KUSK - Sommar. Sómadrengir - Hlemmur Hvítá - Low. Dundur - Fræ. Árni Bergmann Jóhannsson, Guðmundur R - Orð gegn orði. Kári Egilsson - In the morning. Emilíana Torrini - Black Lion Lane. Supersport! - Fingurkoss.