Fimm magnaðar matarupplifanir Árna Hjörvars

Fram og til baka - En podcast av RÚV - Lördagar

Í Fram og til baka þennan morguninn var boðið upp á matarumfjöllun frá og með fyrsta kaffibolla en gestur þáttarins í Fimmunni bauð upp á eftirminnilegar matarupplifanir frá sinni leifsleið. Það var tónlistarmaðurinn og upptökustjórinn Árni Hjörvar, sem hefur ferðast um heiminn þvert og endilangt með hljómsveit sinni The Vaccines, sem bauð okkur upp á fimmu dagsins. Frá grásleppu á Grýtubakka í Eyjafirði, til framandi mexíkókrydda, lífsbjargandi baunarétts við rætur Himalayafjalla í tímamótasúpu dagsins á Stofunni í Reykjavík. Í seinni hluta þáttar heyrðum við í Ólafi Björnssyni fosprakka Hammond hátíðar á Djúpavogi sem var í fullum gangi. Loks var nú tónlistin vitanlega í forgrunni og þar var farið fram og til baka. Lou Reed - Walk On The Wild Side. Vilhjálmur Vilhjálmsson - Lítill Drengur. Ólafur Kram - Silkiþræðir. Elín Hall - Manndráp af gáleysi. The Vaccines - I Always Knew. Aldous Harding - Tick Tock. Mugison - É Dúdda Mía. Prins Póló - Tipp Topp. Paul McCartney & Wings - Band On The Run. Nýdönsk - Styr. Crowded House - Weather With You. Lights On The Highway - Ólgusjór.