Baráttusöngvar og ballöður í fimmu Sigrúnar Skaftadóttur.
Fram og til baka - En podcast av RÚV - Lördagar
Kategorier:
Fram og til baka var á plötubúðanótum á Degi plötubúðanna og gestur þáttarins bauð upp á Fimmu í formi hljómplatna. Sigrún Skaftadóttir er plötusnúður og vert á veitingastaðnum Krónikunni á Gerðarsafni í Kópavogi þar sem boðið er upp á smurbrauð og kökur. Sigrún sagði hlustendum frá þeim plötum sem mótuðu hana frá æsku, allt frá baráttusöngum á borð við Ísland úr Nato - herinn burt yfir í sænsku poppdrottninguna Robyn. Í seinni hluta þáttarins heyrðum við í Rögnvaldi Braga, tónlistarmanni og fyrrum eiganda Pinkuponsulitlu plötubúðarinnar á Akureyri en hún heyrir því miður sögunni til og Rögnvaldur hefur að mestu snúið sér að tónlist í streymi. Loks var nú tónlistin vitanlega í forgrunni og sitthvað dregið fram úr plötuskáp æskunnar hjá umsjónarmanni þáttarins auk annarra léttra og huggulegra tóna sem leiknir voru af hljómplötum í tilefni dagsins. Hér er lagalisti þáttarins: The Beatles - The Long And Winding Road. Vilhjálmur Vilhjálmsson - Og co ... Joni Mitchell - Both Sides Now. Robyn - Dancing On My Own. Kjarabót, Pálmi Gunnarsson - Fylgd. Linda Ronstadt - Blue Bayou Unun - Ást í viðlögum Dægurlagahljómsveitin Húfan - Viltu með mér vaka í nótt Hylur - Disaster Demis Roussos - My Friend the Wind Laufey - Street by Street Pixies - Monkey gone to Heaven Bill Withers - Lovely Day