Álfrún Örnólfsdóttir leikstjóri

Fram og til baka - En podcast av RÚV - Lördagar

söngleikurinn Eitruð lítil pilla var frumsýndur í Borgarleikhúsinu um síðustu helgi og leikstjórinn Álfrún Helga Örnólfsdóttir kom í fimmuna. Álfrún var ung byrjuð að leika en hefur nú snúið sér að leikstjórn og kvikmyndagerð. Við kynntumst henni nánar og heyrðum af U beygjunum í lífinu sem voru sannarlega óvæntar. Í síðari hlutanum tók Söngvakeppnin öll völd og við heyrðum öll lögin sem keppa til úrslita í Söngvakeppninni 2024. Hannes Sasi Pálsson viðburðahaldari og einn af eigendum Pink Iceland kom í kaffispjall og sagði okkur af stórri Fáses gleði kvöldsins og við rifjuðum upp þátttöku hans í Söngvakeppninni fyrir 20 árum.