Adda Rúna bauð upp á fimm mótandi borgir og byggðalög

Fram og til baka - En podcast av RÚV - Lördagar

Gestur Fimmunnar í Fram og til baka þennan morguninn var Adda Rúna Valdimarsdóttir skrifstofustjóri menningarborgar á menningar- og íþróttasviði Reykjavíkurborgar. Hún bauð upp á bráðskemmtilegt ferðalag milli fimm staða, borga sem annarra byggðalaga hér á landi, Adda Rúna ólst upp á Skaganum en fór svo sem unglingur að skoða heiminn og við heyrðum um veru hennar í Texas í Bandaríkjunum, Kaupmannahöfn og ferðir um háldni íslands. Í seinni hluta þáttar hringdum við vestur á firði og tókum púlsinn á tónlistarmanninum Skúla Þórðarson sem kennir nú á gítar við Tónlistarskólann á Ísafirði. Skúli hefur ekki verið eins iðinn við kolann að viðra tónlistarsjálfiðvið, Skúla mennska, en sitthvað stendur til í sumar. Skúli var að undirbúa sig fyrir tónleika kvöldsins en hann kemur fram þessi dægrin með Kennarasambandinu, hljómsveit skipaða samkennurum Skúla við Tónlistarskólann. Loks var nú tónlistin vitanlega í forgrunni og þar var farið fram og til baka. Jónas Sig og lúðrasveit Þorlákshafnar - Hafið er svart. The Kinks - Waterloo Sunset. Dolly Parton - 9 to 5. Abba - Eagle. Kiriyama Family - About you. Stuðmenn - Reykingar. Stone Roses - Made of Stone. Skúli Mennski og hljómsveitin Grjót - Heilræðavísa. Kim Larsen - Papirsklip. Velevet Underground & Nico - femme fatale. Blind Melon - No rain. Beyonce - Hold Up. Electric Light Orchestra - Living Thing.